Þar sem sæði fæst gefins
30.05.2007 01:04:58 / Gunnar

Tímamót

Gott kvöld.

Nú stend ég á ákveðnum tímamótum er marka þáttaskil á ævi minni. Stúdentspróf hefur verið afgreitt og því er kominn tími til að þroskast. Neðanbeltishúmor skuli fjúka út í veður og vind og sérlegri og heldri manna húmor skuli taka við. Með heldri manna húmor er átt við ofanbeltishúmor eins og túttur, magakýlingar, dett á hausinn, tilgangslausar upptalningar og fleiri brandara sem missa marks í örvæntingu hripara sem kennir sig af einhverjum ástæðum við fávita, og það algeran, í von um eitt til tvö hlátrasköll. Ráðgert er að byrja með síðuna hr.gunnaregilldanielsson.blog.is til að vinna mér inn eitt virðingarstig eða svo. Nei nei, ég verð bara hér áfram þar sem auglýsingaherferð þessa vefhýsils eru einkunnarorð eins og: "Langar þig að kíkj'á eikkað?" en í þessari setningu sjást glæpsamleg málfarsbrot.

Nú er ég frekar leiðinlegur maður, illa þefjandi, en þó jarpur á hár, og eru dæmisögur mínar eftir því. Ein slík á sér stað á Samkunduhúsi Framvarðarsveitamanna Íslands, eða á Hlemmi. Nú tek ég strætó til að komast áleiðis á æfingar og slíkt, og er það mjög glatað eins og yðar einlægur. En dæmisagan segir frá samkomu manna sem ég kýs að kalla dreggja samfélagsins. Það eru mennirnir sem eru daginn út og inn að slaka á í horni á þessum mæta stað. Þeir eru ekki arðbærir fyrir þjóðarbúið og ota auri á samfélagið: þetta eru rónarnir, perrarnir og öryrkjarnir sem hér um ræðir. Oftar en ekki er ein manneskja samansafn af þessu öllu saman; perraróni sem er öryrki. Grípum niður í samræður milli mannanna:

Kúkalabbi 1: Já djifuls hver andzkotinn að maður verði ekki að fara redda sér einum helvítiz brennivínszpela!!

Kúkalabbi 2: Njahihihihi jaaaaaa skooo mig langar mest í eina væna ef þú skilur mig HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA ÆJJJÆÆ!

Kúkalabbi 3: Rétt gæþ við ætlum þvoleiðiþ að detta íða í kvöld þko!

Kúkalabbi 4: Af hverju ekki bara núna?!!?!!?!? EHEHEHEHEHEEEEE

(Allir í kór): Njaaihhhahhahiihaahiiaha það var lóðið!!! HJEHJEHJEHJE

Að þurfa að hlusta á svona samtöl lætur mann einungis komast að einni niðurstöðu: Stundum skírlífi.

Ég er dýrðin og vegurinn. Hlustið á mig, því ég veit hvað ég syng (Höf. ókunnur, hugsanlega Jesús Óli Guðsson).

Fuglafiskar eða æðavarp, það er efinn.

kv. Stúdent Gunnar Aggill Nýleðurjakkason


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 02:21:14 / Gunnar

Er framtíð þín blá eða fjólublá? Fjólublár er litur samkynhneigðra en blár ekki

Nei já heilt og sælt veri fólkið.

Ég þarf að fara að gera þetta oftar. Nú er kominn tími til að vera með puttann á púlsinum hvað samfélag okkar varðar. Á hinn bóginn ætti ég að sleppa því, þar sem að hripið yrði þá jafn leiðinlegt og hver einasta síða á Moggablogginu (það er jafn ógeðslegt að segja þetta og það er að skrifa þetta) á blog.is. Já þannig er að hver einasti frambjóðandi og fólk sem telur sig vita allt um pólitík landsins er skráð á þennan vef. Eftirfarandi er tilbúið dæmi af síðu á blog.is:

"Mér er fyrirmunað að skilja hví Ómar gamli Ragnarsson og Margrét Sverrisdóttir hyggist ætla að að bjarga landinu með þessu nýja draumóraframboðinu sínu Íslandshreyfingin. Hvað gengur þeim til? Ómar er auðsjáanlega, bersýnilega, glögglega og algerlega einvörðungu (innsk. Sigurgeirs: veitið athygli mikilli atviks- og lýsingarorða notkun) athyglissjúkur gamall maður og Margrét er bitur vegna þess að hún var hrakin úr kvótakerfisandstæðudraumóraflokknum sínum gamla og vill ekkert heitar en að vera áfram á þingi asssasssassass *prump* *kúk*."

Tilbúna dæmið að framan er lýsandi fyrir leiðinlega gaurinn sem hefur um ekkert annað að hugsa en þessa ótrúlega einsleitu og leiðinlegu miðjumoðskúkapólitík sem þetta land býður upp á (nú er ég óopinberlega orðinn einn af þeim). Enginn munur er á þessum færslum þessa tiltekna fólks, fólkið er alltaf einstaklega vel máli farið, veit af því, en yfirsést að það er svipað óáhugavert og sjónvarpsþátturinn "Tuesday Night Book Club" (Jesús Kristur og allt það sem telst heilagt!).

Tiffany (þessi með fyrirtíðaspennuna): Hvað segið þið stelpöööööörrrrr??? Á ég að fara í strekkinguuuu? Maðurinn minn Bob þekkir góðan fegrunarlækni að nafni Dr. Handsomeburgen.

Carole (þessi með vandræðin í karlamálunum): Óóómmæææ gadddddddd dddd ddd Dr. Handsomeburgen gerði einmitt svuntuaðgerðina á mér, ég myndi defanittlý gera þetta!

Jennipher (þessi með aukakílóin): Sko ég er bara algerlega, sýknt og heilagt, á móti þessu! Djæses stelpur! (innsk. Sóps: lesist með Rosie O'Donnell röddinni)

Hljómar þetta áhugavert? Niiiiiiiii. Það held ég ekki. Það sem er hins vegar áhugavert er skallamyndun. Eins og George Costanza segir: Hvar passar skallamyndun inn í guðlega forsjón og æðri máttaröfl? Því er ekki gott að svara en spurningin er þess virði að velta fyrir sér í að minnsta kosti 3-5 sek og finna út að svör við henni eru á undanhaldi. Nei nú er ég farinn að babla og nokkuð ljóst að verður að setja punkt hér.

Bless

Piparkökustrákurinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 22:42:28 / Gunnar

Hæjjj

Ég er ýkt ógó hress núna... guð.

Já heldur betur laglegt hjá mínum mönnum að slá Evrópumeistara Börsunga út, kátína og gleði er í hámarki. Nóg um það. Ég vil heldur greina aðeins frá því sem fer fyrir brjóstið á mér: Hrikalegt fólk í menntastofnun þeirri sem ég sæki. Við grípum hér niður í atvik sem átti sér stað í strætó er ég spurði einhverja veru hvort ég mætti tylla mér, þar eð ég nennti ekki að standa. Samtalið:

Fremur töff gaur: Mætti ég nokkuð sitja hérna?

Vera: Mlubbluuhlubluhh

Fremur töff gaur lítur í kringum sig og segir: OK

Er ég leit við sá ég mér til mikillar skelfingar annað eintak af þessari veru, á að giska kvendýr, og hafði karldýrið verið að passa sætið fyrir viðkomandi. Seinna komst ég að því að þessar verur séu kallaðar Mansonistar eða gotharar og séu í mikilli snertingu við eigin tilfinningar (emo). Eftir eilitla eftirgrennslan fann ég út að það sem karlveran sagði var í raun og veru: "Það skilur mig enginn í þessum heimi, síst þú, og því máttu ekki tylla þér þar sem ég er að passa sætið fyrir maka minn". Myndi ég halda að þessar verur, sem bregða á sig svörtum "eye-liner" og klæðast leðurfrökkum til að sýna fram á lit sálar sinnar (þau eiga mikið erfiðar en við hin og verða að láta það sjást með fyrrgreindu fugladriti), hafi komið sér upp þessu varnarkerfi að mumla bara eitthvað þegar vatnsgreiddir olíubornir töffarar eins og ég ávarpa þau til þess að loka sig frá umheiminum. Því við skiljum þau ekki, þau eiga svo erfitt. Sniff. Snökt.

Þá er það eitt sem ég mun aldrei komast yfir. Hvernig stendur á því að ég sjái á hverjum degi minnst fimm manns sem mæta í bévítans og déskotans náttbuxunum sínum!?!?!? Þetta nær engri átt. "Uhhh ég er svo þreytt/ur mahhrr að ég ætla bara í náttbuxunum mínum í skólann". Hvaða helvítans asnaskapur er þetta? Þetta er jafn ósmekklegt og þessi árans helvíti sem mæta í hlýrabol í skólann, undantekningalaust afmyndaðar lesbíur eða gaurar sem eru jafn massaðir og ég og Peter Crouch. Ég ætla svo ekki að eyða orðum í öskudaginn í MH (mesti gleðidagur viðundra innan veggja skólans).

Uhhh ahhh skvarigg ó heyr mína raust. Það er afar hæpið þar sem MH-ingar (2-4 kannské ) , jah, lesa þessa síðu ekki en ef svo skemmtilega vildi til að ÞÚ sem ert að lesa þetta mættir í búning á öskudaginn, þá bið ég þig vinsamlegast að gera það sem Geitin býður: Að skokka á vegg.

Fleira var það ekki að sinni.

Hafið áfram stillt á okkur.

Gunter Grassmonkey


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 22:55:01 / Gunnar

Frumlegur titill sem stefnir að hlátri, hugvekju eða kátínu

Hæjjj.

Færsla nr. 5 síðan hin óviðjafnanlega endurkoma átti sér stað hefur litið dagsins ljós. Ritstífla, annir, augnháraplokkun og leti hafa valdið töfum á færslu þessari. Að þessu sinni luma ég ekki á neinu sniðugu en endilega haltu lestrinum áfram. Að undanförnu hef ég leitt huga minn að mat. Ég veit hvað þið hugsið núna: "HA? ER HANN LOKSINS BYRJAÐUR AÐ BORÐA HELVÍSK RENGLAN!?!?!?" Nei grín. Samt ekki. He. Nei ég er hér að tala um skringileg einkunnarorð matvörumerkja. Dæmi: Chicago Town pizzurnar eru tilbúnar á aðeins 3 mínútum í örbylgjuofni!! Ekta New York pizzur!!

.....

Fólk með snefil af viti sér að ekki er allt með felldu hér. Skv. öruggum heimildum mínum eru New York og Chicago ekki sama borgin (Sönnunargagn 1 er Chicago Bulls og Sönnunargagn 2 er New York Knicks).

Ummm já ég er skemmtilegur gaur eða hitt og. Haha. Ég vil nota tækifærið og lýsa yfir hatri á þessari lágkúru og saurgotu sem "sjónvarpsþátturinn" X-Factor er. Hér spilar ein afar góð ástæða lykil rullu. Ellý. Ellý? Hver í déskotanum og veraldlegu helvíti er Ellý PÖNKDROTTNING ÍSLANDS SEM ENGINN HEFUR SÉÐ ÁÐUR EÐA VEIT HVER ER!! Staðreyndir sem ég hef komist að um þessa Grimmhildi Grámann íslensk sjónvarps.. og þá tónlistar líka þó að enginn viti í hvaða böndum hún var í:

Glenn Close hjálpaði mér oft á einmana nóttum

1. Hún er með orðaforða á við snarþroskaheft 5 ára barn sem skeinir sér með plastfilmu og syngur I want to break free með Queen í takt við ("Ehh mér fannstidda bra alleg æðislega flott eillega).

2. Þegar hún talar hreyfast helvítis collagen, bótox útúrsprautaðar plastvarir hennar ekki neitt svo að enginn fattar neitt hvað kemur út úr henni.

3. Það veit enginn eftirnafnið á þessari tæfu sem segir alltaf  "ja ehh ég væri nú til í að sjá þig aðeins rokkaðari næst" þegar flytjandi syngur bara eitthvað lag sem flokkast ekki sem rokk.

4. Hún klæðir sig eins og.. eyðum ekki orðum í það.

Þetta hef ég fundið út með því að sjá samtals 35 mínútur af allri seríunni auk auglýsinga og ég set punkt hér. Sigurgeir has left the building.

Skvamigg


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 16:20:17 / Gunnar

Kraftaverkin henda

Hæhæ.

Annir í skóla hafa tafið komu þessarar færslu. Atburðir síðastliðna missera gefa til kynna að árið 2007 leggst sannarlega vel í geðsjúklinga. Þar ber helst að nefna að Kristur gengur meðal vor. Ekki er það hinn vel þekkti og margrómaði Jesús Guðsson. Nei. Þetta er enginn annar en Tom Cruise! Hetjan sem hefur leitt myndir eins og Top Gun og Mission: Impossible trílógíuna er æðsti spámaður Vísindakirkjunnar samkvæmt nýrri yfirlýsingu og er sem sagt kristur þeirra. Athyglisvert er að sjá hverju menn Vísindakirkjunnar trúa. Samkvæmt þeim eru siðir okkar manna byggðir á fornum siðum geimvera. Stofnandi trúarbragðanna var vísindaskáldsöguhöfundur. Himininn er gulur. Dæmi hver fyrir sig.


Kristur 21. aldarinnar og gamli góði Kristur. Ýmislegt er líkt með þeim kumpánum: Báðir hafa gaman af matseld, löngum gönguferðum á ströndinni og pyndingum. Gamli Kristur er þó meira karlmenni, enda er Tom Kristur 169 cm á hæð og með talibana skegg.

Og þar sem verið er að ræða um geðsýki, þá kemur Guðmundur í Byrginu mér sífellt á óvart. Hann, BDSM fan nr. 1, segist ætla að kæra gellurnar sem hann er búinn að vera að eðla sig með á ósmekklegan máta fyrir nauðgun, eftir að einhver af þeim ætlaði að kæra hann fyrir kynferðislega misbeitingu. Skemmtilegt að segja frá því að Guðmundur segir sæði sitt hafa lækningarmátt, í nafni Guðs. Þetta meikar allt skyndilega sens. Já. Niðurstaða mín er að klámmyndaframleiðendur eru allir kristnir með tölu, og þetta er einmitt ástæða þess að mennirnir í klámmyndum losa alltaf sæði sitt í andlit kvenna. Það er lækningamátturinn í sæðinu. Og ég sem hélt að þetta væri augljóst dæmi um hvernig konur eru niðurlægðar í klámmyndum þegar þetta er gert. Nei, þær fagna þessu og uppskera betri húð, og umfram allt, betri persónuleika. Heimsfriður öll sömul.

Að síðustu vil ég taka aðeins fyrir bankana á Íslandi í dag. Maður þverfótar ekki fyrir einhverjum bankaauglýsingum þar sem trilljörðum er eytt í John Cleese og fleira. Spaugstofan komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri allt saman typpapólitík. Metingur um frammistöðu og  hver er stærri, betri, reyndari og breiðari. Líkan af stöðu bankanna út frá typpafræðilegu sjónarmiði væri þá einhvern veginn á þessa leið:

1. Kaupþing eða KB Banki: Rúmir 28 cm að lengd að eigin sögn, breidd óþekkt, reynsla +500 gellur og endist eins lengi og hann vill maaaaaaaahhhrrrr!

2. Glitnir: Rúmir 20 cm að lengd, unir vel við sitt, breidd óþekkt, reynsla 14 gellur og endist frá 15 mín upp í klukkutíma.

3. Landsbankinn: Rétt um 15-16 cm langur limur, væri til í að vera nokkrum cm stærri, breidd óþekkt, reynsla 2 stelpur sem hann elskaði og endist 5-10 mín.

4. Sparisjóðurinn: 10-12 cm grátlegt typpi, minnimáttarkennd, geðsveiflur og skita, breidd svo gott sem engin, hreinn sveinn og myndi endast hálfa mínútu.

Já þar hafið þið það gott fólk. Kaupþing tröllríður öllu og er stærstur og bestur og vílar ekki fyrir sér að sýna öðrum á sér risavaxinn vininn. Glitnir eru þarna næstmest áberandi bar ágætlega sáttir með sinn tilla. Landsbankinn sést en gæti gert betur með reðurstækkara. Sparisjóðurinn er með kúkinn upp á bak, lætur ekkert í sér heyra enda haldinn minnimáttarkennd með sína grátlegu stærð.

Vona að lesendur hafi haft gaman af. Ég meina þar sem geðsjúklingar láta ekki sitt kyrrt eftir liggja á nýju ári, ætti ég ekki að gera það frekar eða hvað?

Kveðja,
Gunnar (rammsósíalískur inn að beini)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 00:22:38 / Gunnar

Mnnnjaaa

Sæl aftur.

Víst er að alvarleg skita hefur átt sér stað þar sem að veikindadagar mínir eru núna komnir upp í 10 stykki. Annars hef ég verið að gera lítið annað en að djamma.


Hansína og ég. Fyrir aftan sést í Guðröð og Geirþrúði getting it on!

Já djammið í sjálfu sér stóð langt fram á nótt, við Hansína vorum komin í bólið um það leyti sem kvöldfréttatíminn gekk í garð. Wrarrrr!


Gúndína komin í djamm fílínginn með djammgleraugun 8) og Nílsína ekki langt undan að öskra á Jónatan :D


Farið að hitna í kolunum á bingókvöldi hjá Gnúpi og Gunnvöru! :lol:

Eftir allt þetta verð ég að taka mér frí frá djammi í minnst fimm ár, en þetta var vel þess virði. Brotin mjaðmakúla, ólétta hjá Hansínu, 300 krónum eytt í bingóspjöld (ég sé þann pening ekki aftur) og sukk og svínarí. Myndi ég gera þetta allt aftur? Þú getur veðjað liðagigtinni þinni á það!

Annars er lítið að frétta. Ég og Knútur erum að fara að spila á spil, eflaust eitt af þessum nýju, lúdó eða dómínó. Hehe.

Later skater alligater traiter

Gunz

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 01:33:22 / Gunnar

Pomp og prakt

Hæ.

Endurkoma mín í hripheiminn er strax byrjuð að vekja neikvætt umtal og er það vel. Eftirfarandi er tekið úr smásmugulegri færslu á blog.central.is/rivertownboyz:

Tilvitnun hefst: " svo ætla ég að æla og kúka og kúka og æla (nei nei varð bara að vitna í nýjustu færslu hins afrísk ættaða Gunnars Egils sem er byrjaður aftur að blogga)8| Hvaða broskall er nú þetta hugsa eflaust margir (margir það eru nú ekkert margir sem skoða þessa síðu haha) nei annar Gunnars brandari." tilvitnun lýkur. Þetta var skrifað aðeins tveimur dögum eftir að ég stofnsetti mína mögru og kjötlitlu síðu og er það ekkert nema gott um það að segja; illt umtal er betra en ekkert eins og Sigurgeir tilgreinir.

Nú það er helst að frétta af mér að ég er fárveikur með gífurlega mikla beinverki. Eins og flestir vita er það að vera með beinverki sérstaklega slæmt fyrir mig þar sem líkami minn samanstendur einungis af beinum EHEHEHEHEHEHEHEHEHEHEHE.

Von er á meiru seinna.

Gunnar

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 04:59:30 / Gunnar

Fávitinn snýr aftur!!!!

Engar nýjungar!

Engar endurbætingar!

Sama handfylli af lesendum!

Jú endurkoma Fávitans er orðin að staðreynd, fólki með virka heilastarfsemi til mikillar mæðu. Fávitinn hefur verið að hvíla lúin bein í leit að innblæstri í náttúrunni. Sú leit bar ekki þann ávöxt sem Fávitinn vildi og því verður lesandinn að sætta sig við það lesefni sem er honum fyrir sjónum í þessum töluðu. Glöggir hafa tekið eftir því að Fávitinn talar um sjálfan sig óspart í þriðju persónu, og ber þetta nýtilkominni ofursjálfsdýrkun Fávitans augljóst vitni, það að Fávitinn skuli ætíð skrifaður með stórum staf og sem fyrr segir, í þriðju persónu. Fávitinn var greinilega búinn að kúka upp í sjálfan sig, æla honum aftur út, maka honum í vit sér, æla aftur yfir því, borða allt heila klabbið og kúka svo og æla öllu heila klabbinu aftur í eilífri hringrás en ákvað að binda endi á það, sem sagt snúa aftur í hripheiminn.

Aðspurður segir hann ástæðuna vera þá að hann hafi hrifist svo af þeim fjöldamörgu hripsamtökum sem nú eru við lýði á landinu, betur þekkt sem blogggengi. "Jú eftir þessa eilífu ælu- og kúkahringrás sá ég ljós í myrkrinu þegar ég rambaði inná blog.central.is/*inksugar og sá hvað hrip um daglegar gjörðir, mynda"flipp" svokölluð og spurningalistar um meðlimi voru gífurlega skemmtileg dægradvöl." Ég ákvað sem sagt að ég gæti ekki látið mitt kyrrt eftir liggja og sneri því aftur."

Hér er svo athyglisverð pæling: Ef gúrkur eru 90% vatn, þarf ég þá að míga ef ég borða heila gúrku? Nú ja svei mér ég veit það ekki.

Nýju ári fylgir ný hripvertíð, en þessi óheiðarlega tilraun til að kúka ekki á sig og snúa aftur er gerð í þeirri von að heimsóknir, og já jafnvel skoðanir, jú svei mér jafnvel gestabókarskrif muni vera manni sæmandi.

Tillaga var lögð fram á ákveðnum tímapunkti um að breyta skyldi nafni síðunnar úr blog.central.is/algjorfaviti í blog.central.is/algerfaviti ef snúa ætti aftur, þar sem það væri betri íslenska, en var hún felld með ríkjandi meirihluta á málþingi á klósettinu heima hjá mér, með einu atkvæði gegn engu.

Með von um viðlit,

Kúkur


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 22:12:55 / Gunnar

Á útleið

Jú hæ.

Já mín ástkæra kúkabrúna heimasíða er í þann mund að syngja sitt síðasta, að ég tel. Frá alda öðli, þ.e. um mitt ár 2004 hef ég skitið á mig og pissað líka þegar á við, á skriflegu formi. Eins og staðan er í dag, þegar lesendur/áhangendur/velgjörðamenn eru á bilinu 2-5, semsé teljast á einni hendi þá er vissara að nota bréfdúfutæknina annáluðu ef fólk er áhugasamt um mína hagi. Nú er ekki úr vegi að sameinast í bæn:

Ó kæri fáviti
þú ert að sönnu alger
þó að ég á mig skiti
var hringvöðvinn aldrei sver
 

Já ég bið allt ofsatrúarfólk auðmjúklega afsökunar ef þessi litla bæn fór fyrir brjóstið á þeim. Ég skellti inn nýrri skoðanakönnun sem ég sjálfur tek allavega þátt í, og ef ÞÚ lesandi góður, ert ekki ég, mátt ÞÚ taka þátt í henni líka! Já þetta eru fríðindin sem fylgja því að vera gestur á þessu forláta vefsetri. Nú ég tel að það sé við hæfi að myndskreyta færsluna með viðeigandi hætti:

Kúkurinn hérna er mjög táknrænn fyrir þennan tíma sem við höfum átt saman. Bæði eru þetta mjög góðar hægðir, auk þess sem glöggir hafa tekið eftir því að þessi kúkur er mjög dökkleitur, sem er við hæfi séu uppnefni í garð minn og litarhaft ákveðinna líkamshluta hafð í huga. Fróðleiksmoli: Vissir þú að dekkja þessa saurs sem sést hér að ofan stafar af mikilli járninntöku þess sem hægðir þessar á?

Því meira sem þú lærir. Já þessi síða er gamlar fréttir. Ég hef dregið mig í hlé. Þakka áhorfið og vinveitt og óvinveitt orð í gegnum tíðina.

Blessi ykkur lömbin mín.

Gunnar Egill Daníelsson (fullt nafn í fyrsta og eina sinnið!)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 14:12:12 / Gunnar

Titill

Ég heilsa.

Já komið öll sæl. Ég hef tekið eftir því að virkni almennt á hripsíðum hefur farið snarlækkandi á undanförnum misserum. Er ég sjálfur þar engin undantekning en ástæðan er sú að eins og sannur listamaður hef ég verið í leit að innblæstri. Ég hef marga fjöruna sopið í þessari leit minni þar sem ég til að mynda heimsótti Skjól og spilaði bingó, varði löngum stundum á kamrinum og velti fyrir mér lögun hægða minna, fléttaði rassahárin mín, stillti til innri friðar við sjálfan mig og síðast en ekki síst fór ég að gera vatnslitamyndir (sjá www.drawingsfordummies.org/retards.htm). Ekkert af þessu virkaði en er ég betri manneskja fyrir vi... nei nú er ég hættur að væla og hér er merki um töffaraskap minn:

Kúkur!

Tjéddlingar!

Tan!

Nettur!

Kjeppinn!

Já ég hef öngvu gleymt hvað þetta varðar. Vil ég svo benda fólki á nýjung í sjónvarpi sem heitir Hip-Hopera. Já R. Kelly sýnir Sópi hvar Sigurgeir keypti ölið. Hér er hlekkur: http://www.youtube.com/results?search_query=trapped+in+the+closet

Þetta er vel þess virði að kíkja á, enda versta sjónvarpsefni allra tíma á ferðinni. Í grundvallaratriðum er þetta 3 mínútna langur þáttur í 12 hlutum þar sem R. Kelly syngur fyrir alla karakterana. Spennandi.

Svo vil ég benda þeim sem er boðið að svara Hinni hliðinni á Fotbolti.net að halla undir flatt og segja: Nei því miður ég get það ekki, ég er nefnilega einhliða!

.................................................................................................................... ....................................................................................................... ...................................................................

Haha já þetta var fyndið. Von er á nýrri færslu þegar ákveðið verður að hætta allri klámframleiðslu í heiminum.

Gunnar


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 20:31:14 / Gunnar

Hvar eru kiddóarnir?

Nei hæ.

Nú er svo í pottinn búið að skólinn er hafinn að nýju og er það prýðilegt. Með augun að vopni hef ég kíkt örlítið á hvernig busarnir/nýnemarnir/freshmen líta út. Ég er ekki frá því að það sé bara fullkomin endurtekning af '89 árgangnum. Ein stúlkan er búin að stimpla sig allrækilega inn nú þegar en hún mætti Í NÁTTBUXUNUM!! fyrsta og einnig annan daginn sinn. Búist er við að hún endi á þingi fyrir Vinstri græna, byrji að reykja hass og muni láta lífið fyrir einhvern göfugan málstað eins og "Björgum brönugrösunum". Já svei. Svo var snoðaða gellan (ég fékk bráðasáðfall allavega, veit ekki um ykkur) sem mætti í bláum sokkabuxum og viðbjóði í stíl. Svo var 50 cent wannabe-ið, hvítasti gaur sem ég hef séð, og nutum við ásta inni á fatlaðra klósetti (sönn saga).

Eins og þið sjáið var þetta mjög getnaðarlegur dagur. Ég var samt sem áður mjög svekktur að sjá ekki fleira fólk með kiddó lúkkið. Ég bjóst við heilum helling þar sem '90 árgangurinn er svona almennt séð með kiddó lúkkið. Sumir allavega. Það var ljótan. En ekki skal gráta Björn bónda.

Myndskreyting: Hér getur að líta lítinn krakka (kiddó) að gæða sér á áfengi. Búist er við að þessi sýn verði raunin á flestum busaböllum á næstu misserum (Ath. myndin er sviðsett).

Já það er gaman að því. En þá er komið að eldheitu slúðri:

* Árni "Músi" er á huzzlinu þessa dagana. Gangi þér ógó vel með það ;) :D :*

* Fleira er ekki í fréttum

Bless í bili, náttúran kallar.

Gunnar


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 01:36:11 / Gunnar

Á villigötum (Afvegaleidd æska og hugvekja)

Já heil og sæl.

Ég þakka dræmar undirtektir við síðustu færslu, en sá eini sem sá sér fært um að segja sína skoðun var bróðir minn Helgi undir áhrifum sterkra vímuefna. Ef þið föttuðuð ekki djókinn hans, sem var ef ég má bæta við, mjög góður, þá er ríbóflavín einmitt efnið sem gefur pissinu (við könnumst flest við það, draslið sem kemur úr kynfærunum þínum) þennan djúpa gula lit. Einnig mætti minnast á það að ég mun heimsækja hann um miðjan nóvember og þar munum við fara á TÓNLEIKA með SLAYER, LAMB OF GOD, IN FLAMES, CHILDREN OF BODOM OG THINE EYES BLEED !!!!! !!!!!

Tónleikarnir verða haldnir 16. nóvember í Stokkhólmi og býst ég fastlega við einni mestu skemmtun lífs míns. Já það eru kannski svona 1-2 lesendur sem fíla þessar hljómsveitir þannig að flestir hugsa núna: Hverjum er ekki drullusama um þessa arabahorrenglu og tónlistina sem hann fílar!!?!!?!?! Nei þarna gekk ég kannski yfir strikið. Alveg óþarfi að vera með fordóma gagnvart sjálfum sér og kynþætti sínum.

En að öðrum sálmum. Æskunni. Æska unglinga er með öllu horfin fyrir bí miðað við hvaða óþverra maður rekst á á netinu. Jú eftirfarandi staðhæfingar eru teknar með alls engu leyfi frá síðunni blog.central.is/-exotic þar sem er að finna 14-15 ára stúlkur:

-Guðný var að dansa við eitthvern gaur fékk svo allt i einu bara puttann uppí klofið og hann byrjaði að kyssa aðra ;) (Innsk. Sigurgeirs: Flott "alltíeinubaraputtannuppíklofið" )

- Guðrún Dóra tók tvo! (Innsk. Sigurgeirs: Flott tak)

- Beta var með metið og slefaði uppí 4 heita gaura... (Innsk. Sigurgeirs: Flott met)

- HarpaK á blússandi þó hún sé nú á föstu stelpan það stoppaði hana ekkert.. ! HarpaK þó (Innsk. Sigurgeirs: Flott blúss)

Já og svo kíkti ég í gestabókina á þessari síðu og þá var að finna link á mynd af einni þessara stúlkna þar sem hún berar á sér brjóstin með bros á vör. Já sumir hriprúntar leiða mann í ógöngur en nú fannst mér nóg boðið. Ég er nokkuð viss um að ég hegðaði mér tæplega svona á þessum aldri og ekki jafnöldrur mínar. Gott að sjá að stúlkur á þessum aldri beri svona mikla virðingu fyrir sjálfum sér og séu byrjaðar að stunda kynlíf við 12 ára aldur (kiddósex). Já þetta er hressandi. Verðandi/núverandi hórur einhver?

Og svo að lokum nýja myndbandið með Love Guru Allstars.

..........

...........

GUÐ MINN GÓÐUR

Ég er ekki frá því að öll helstu og virtustu (líklegt) blogggengi landsins hafi sameinast í þessu forkastanlega lélega lagi með einhverju versta myndbandi allra tíma. Já flottur gervifílingur hjá öllum gellunum og ótrúlegur hallærisleiki sem svífur yfir vötnum. Felix Bergsson í björgunarvestum? Love Guru að míga? Brynjar einhver að kúka í sig í sjóarabúningi og hræðilega pirrandi gellurödd í anda Kristínar í Snooze og Igore? Já best að kýla á þetta, svo ÉG hafi eitthvað til að hrauna yfir. Ótrúleg hegðun. Ég fékk bara velgju og kjánahroll af því einu að bera þetta augum.

Já fleira var það ekki að sinni.

Skeggræðið þetta nú, þar eð þetta er mál sem snertir okkur öll!

Tnjakk fyrir tnjakk tnjakk

Blnjess

Gönni


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 19:04:01 / Gunnar

Ég reið frænda mínum

Heilir og sælir.

Ég vil byrja þetta hrip á því að greina frá ferð minni á tónleika á sunnudaginn var. Já ég fór ásamt Ásdísi á Sigur Rósar tónleikana sem lukkuðust nokk vel. Helsta ástæðan fyrir því var sú að ég fór í klippingu og fékk mér ljóta hárgreiðslu, klæddi mig upp í ruslapoka og reykti hamp og hugsanlega fór ég yfir í eitthvað sterkara því að ÉG VAR SVO FREÐINNN MAAAAAAAAAAAAAAAAAARR! Þessar gjörðir mínar voru lykilatriði til þess að fá sem mest út úr hljómleikum þessum og skarta ég núna hommalegum "égvinníspútnikoghlustaáhommarokkböndsemþúhefuraldreiheyrtum" topp á höfði mér.. að ógleymdum ljótum fötum. Þetta ber ekki að skilja sem svo að ég hafi ekki notið mín á tónleikunum og hafi ekki elephantað (fílað) mig þarna, því að jú, ÉG VAR SVO FREÐINNNN MJEEEEEAAARRR!!!

Og yfir í merkilega staðreynd. Hver einn og einasti landsmaður sem hefur snert af rauðu hári á höfði sér var mættur í Klambratún á þessa tónleika. Hver sá sem er rauðhærður á landinu í dag var staðsettur þarna, og var þetta full langt gengið þar sem sumir gengu það langt að fremja helgispjöll með því að skarta SÍÐU RAUÐU HÁRI! Heppni fyrir mig að ég kom með snoðvélina mína og réðist að þeim nokkrum og fékk hárið að fjúka svo um munaði. 12 dánir. 4 illa slasaðir. 5 snoðaðir. 7 skafaðir.

Já eins og sést gekk þetta ágætlega hjá mér og ef að þér lesandi góður, finnst að þér vegið með þessari greinargerð, then you can just suck my ding dong! (þá skalt þú gjöra svo vel að lepja á mér millifótakonfektið!)

Já svo má minnast á nýju skoðanakönnunina sem enginn virðist hafa látið fram hjá sér fara, þar sem þátttakendur eru nú þegar komnir á þriðja tug! Ótrúlegt! Stórkostlegt!

Ég er með typpi.

Bless

Grassmonkey


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 12:31:06 / Gunnar

Ný tölva komin í gagnið: II kapítuli

Já nýja tölvan reyndist ekki jafn mikil himnasending og ég í barnslegu og grátlegu sakleysi mínu hafði talið sjálfum mér trú um. En NÚ hins vegar ætti hún að vera komin í gagnið þar sem búið er að formata hana, encode-a, zip-a, cynical-b, synchronize-a, downsize-a og fleira til! Já svei mér nú er stefnt á 10000 gesti!

Haldin verður veisla í tilefni af 10000 manna múrnum þegar þar að kemur en veislan verður haldin í Gallerí Fisk sem er rétt rúmir 10 fm en það er allt í lagi þar sem ekki er búist við mörgum gestkomandi. Nú þar sem þetta verður haldið í Gallerí Fisk er ekki úr vegi að minnast á að Agnar Bragi mun útbúa léttar veitingar með fiskatyppalyktina sína að vopni, og ljóst er að öllu verður tjaldað til að gera veisluna sem ógleymanlegasta.

Þá er komið að verðlausu (e. priceless) samtali sem sýnir hversu ótrúlega þroskaheft fólkið er sem ég glími við í símann:

Ég: Domus Medica (ótrúlega hommalegt ég veit, pæling að segja frekar CIA eða White House ognúerégfarinnaðmíga..)

#$$&/(&(Nafleyndar er gætt): Já ég ætlaði að koma til skilaboðum til Björgvins

Ég: Já hvað er nafnið?

#$#&$: Já það er #$%$%/$%

Ég: Já og kennitala?

#$%#%: Ég á heima að..

Ég: Nei ég þarf kennitöluna þína

"#$"$"#$: ÉG FER EKKERT AÐ GEFA ÞÉR KENNITÖLUNA MÍNA Í SÍMA! VEISTU EKKI AÐ Í BRETLANDI ER HÆGT AÐ SENDA MENN Í JAILIÐ FYRIR AÐ SPYRJA SVONA!!??!?!!?

Ég: Já það vill nú til að við erum á Íslandi þannig að..

"#$"#$"#: JÁ 21. ÖLDIN ER BARA EKKERT KOMIN HINGAÐ!

Ég: Já en mér ber skylda til að spyrja alla um kennitölu sem skilja eftir skilaboð..

"""#"#$"#: Já þá kannt þú þetta bara ekkert..

Ég: Mér er sagt að taka alltaf niður kennitölu..

"#$"#$" Já segðu honum bara að hringja í mig hann veit hver ég er ég hef verið hjá honum lengi skvááááááámiggg varrgigg

Já og svo lagði þessi maður blessunin á. Mér fannst ansi nett hvernig að hann tók kastið á mig þegar ég minntist á kennitölu og hækkaði róminn (e. raised his voice) talsvert. Ef ég ætti að giska þá lifir þessi maður í sífelldum ótta í neðanjarðarsprengjubyrgi sínu og bíður eftir árás.

Segjum þetta ágætt í bili og allar skoðanir afar vel þegnar.

Þangað til næst

Narró


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 14:09:44 / Gunnar

Ný tölva komin í gagnið!

Já komið sæl kúkar og pissar.

Já við systkinin, ég og Tinna höfum fest kaup á nýjum tölvukassa, sem er akkúrat ekki rassgat nýr en samt sem áður hraðvirkari og 9 sinnum betri en forveri hennar (Gilitrutt f. 99 d. 00 en notuð 6 árum betur). Já nýja tölvan mun heita Golíat vegna stórkostlegrar vöðvabyggingar og grimmrar lundar. Takið eftir þessu að hér gef ég dauðum hlut, tölvunni í þessu tilfelli, persónueinkenni og því er þetta p____g____g (Svar neðst). Því meira sem þú lærir.

Ég er loks kominn með nýtt starf. Það er vægast sagt hræðilegt hvað laun varðar, þar sem ég vinn einungis 4 tíma á dag og reikna með að fá tæplega 100.000 kr. fyrir sumarið. Já ég er sem sagt símadama hjá Domus Medica á fjórðu hæð þar sem er að finna tvo geðlækna, þrjá lýtalækna, tvo heimilislækna, húðlækni og meltingarlækni! Þetta breiðir tjöld sín yfir nánast allan læknageirann! Þannig að hringið endilega og ég redda ykkur appointment.

Já svona er þetta við stelpurnar slúðrum voða mikið og tölum um hver er að verða feit og hver lítur vel út þessa dagana í daglegu gellukaffisígógellugellu spjallinu okkar þar sem við miðaldra konur slettum ótt og títt. Hér er dæmi um samtal okkar stelpnanna:

Gella 1 (ég): Jiiiiisús minn hvað hún Gerða er orðin þung. Þetta er alveg hriiiiikalegt (get gefið ykkur hljóðdæmi í eigin persónu).

Gella 2: Já gavuuuuuuuuð ég held bara að þetta sé vegna þess að hún hefur verið svo depressív greyið!

Gella 3: Já jiiii hún er ekkert voða impónerandi svona.

Gella 4 (gellurnar hrannast inn!): Ohhh jiii gavuð jiiii sús minn. Ekki er þetta nú lekkert.

Já eins og þið sjáið eru jákvæðir hlutir við þetta starf þar sem ég nýt mín til hins ýtrasta sem kona. En nóg um það. Vinnutíminn er frá 13-17 þannig að ég missi af HM leikjunum mörgum. En þetta er Just My luck NÝJA UNGLINGAGAMANMYNDIN MEÐ LINDSAY LOHAN! Lindsay hefur sigrast á anorexíunni en tútturnar komu ekki aftur! Helv.....

Já segjum þetta fínt.

Svar: Persónugerving

Gunnfríður


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6